Fasteignasalan Hvammur 466 1600 kaupa@kaupa.is
Eign með tveimur rúmgóðum íbúðum á 7.800 m² eignarlóð úr landi Króksstaða í Eyjafjarðarsveit.
Húsið skiptist þannig að á efri hæð er 4ra herbergja íbúð sem skráð er 132,1 m² að stærð og á neðri hæð er 3ja herbergja íbúð sem skráð er 119,2 m². Heildarstærð eignar er 251,3 m²
Íbúð á efri hæð skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Íbúð á neðri hæð skiptist í forstofu, tvö herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur.
Nánari lýsing
Íbúð á efri hæð
Forstofa er með harðparketi á gólfi og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu rými með harðparketi á gólfi og í stofu eru loftin tekin upp. Úr borðstofu er útgangur á svalir til vesturs með einstöku útsýni.
Eldhúsið er nýlega tekið í gegn og er með harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu með innfelldum ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú og í þeim öllum er harðparket og nýlegir fataskápar.
Baðherbergið er einnig nýlega endurnýjað og þar er harðparket á gólfum, upphengt wc, dökk innrétting og rúmgóð sturta með gleri. Á baðherberginu er opnanlegur gluggi.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi og ljósri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Framan við húsið er rúmgóð steypt verönd og þar er heitur pottur.
Íbúð á neðri hæð
Forstofa er rúmgóð og þar er harðparket á gólfi og góðir fataskápar.
Stofan er björt og þar er harðparket á gólfi og útgangur á timburverönd til suðurs.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu með flísum á milli skápa og rúmgóðum borðkrók.
Baðherbergið er með flísum á gólfi, ljósri innréttingu og sturtu með hengi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús er innaf forstofu
Geymslur eru tvær, önnur innaf forstofu og þar eru hillur á veggjum og hin er mjög rúmgóð og er utangengt í hana. Þessi geymsla er undir stigapalli/verönd efri hæðar og er skráð 18,3 m² að stærð.
Lóðin er stór eignarlóð í óskiptri sameign, 7.800 m² að stærð. Tveir góðir geymsluskúrar eru á lóð, einn fyrir hvora íbúð. Stórt malborið bílaplan er austan við húsið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.