Fasteignaleitin
Skráð 8. júní 2026

Kambur 0

SumarhúsNorðurland/Húsavík-641
69 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
36.400.000 kr.
Fermetraverð
527.536 kr./m2
Fasteignamat
27.550.000 kr.
Brunabótamat
36.100.000 kr.
Fasteignanúmer
2164619
Landnúmer
153890
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Kambur í Aðaldal, snyrtilegt sumarhús á friðsælum stað í 50 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.
Húsið var byggt 1949 og er samtals 69 m2 allt á einni hæð, auk ca. 6 m2 útigeymslu vestan við húsið, húsið stendur á 1.547 m2 eignarlandi og selst með húsinu.
Húsið stendur á steyptum grunni og er klætt með viðarklæðningu, við innganginn austan megin er hellulögð verönd með skjólvegg og stór pallur er við suðvestur hluta hússins. Malarvegur liggur að húsinu með bílaplani.

Í húsinu eru tvö svefnherbergi, eldhús og borðstofa í opnu rými, sólstofa, baðherbergi með sturtu, og geymsla.
Sólstofa - Gengið er inn í sólstofuna með stórum gluggum í norðaustur, þar eru flísar á gólfum og LED lýsing í lofti.
Eldhús, borðstofa – Ný eldhúsinnrétting var sett upp 2024, sambyggð eldavél og uppþvottavél er í eldhúsi auk tengi fyrir þvottavél, borðstofa er í sama rými og er vinylparket á gólfum, hurð frá eldhúsi leiðir út á stóran pall.
Svefnherbergi – Í húsinu eru tvö svefnherbergi, vinylparket á gólfum, fatasnagar eru í öðru herberginu og fataslá með snögum í hinu.
Baðherbergi – Eitt baðherbergi er í húsinu, þar eru gráar flísar á gólfum og hvítar baðplötur á veggjum, sturta og handklæðaofn.
Geymsla – Lítil geymsla með ísskáp, þar er vinylparket á gólfi og spónaplötur á veggjum.
Pallur – Við vestur- og hluta suður vegg hússins er viðarpallur með skjólvegg, þar er ca. 6 m2 útigeymsla, á pallinum stóð rafmagns heitur pottur sem hefur verið fjarlægður.

Annað
- Afhending 1. september eða eftir samkomulagi.
- Allt innbú fylgir eigninni, fyrir utan sófa í sólstofu og rúmin.
- Ljósleiðari er kominn í húsið.
- 15-20 mín. akstursfjarlægð frá Laugum.
- 25-30 mín. akstursfjarlægð frá Húsvík.
- Þakrennur endurnýjaðar 2024.
- Lýsing, parket, rafmagnstafla og innfellingarefni endurnýjað 2023.
- Gler í sólstofu var endurnýjað, skipt um klæðningu neðan við glugga þar og timburverk lagfært.
- Nýjir ofnar settir upp 2020.

Nánari upplýsingar í síma 571-9991 eða á fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
FS fasteignir ehf
fsfasteignir

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tryggvagata 26
Skoða eignina Tryggvagata 26
Tryggvagata 26
800 Selfoss
62 m2
Hæð
312
627 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 10, íbúð 0202
Sambyggð 10, íbúð 0202
815 Þorlákshöfn
65.9 m2
Fjölbýlishús
211
604 þ.kr./m2
39.800.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 5 með góðu millilofti
Vesturbakki 5 með góðu millilofti
815 Þorlákshöfn
98.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
318 þ.kr./m2
31.200.000 kr.
Skoða eignina Grund II
Opið hús:26. júní kl 16:00-17:00
Skoða eignina Grund II
Grund II
605 Akureyri
108.8 m2
Sumarhús
534
542 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin