Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignsala kynna fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli (6 íbúðir í stigagang) á góðum stað á Holtinu í Hafnarfirði að Suðurbraut. Stutt í leik- og grunnskóla, sund, íþróttir, góðar gönguleiðir og útivist. Baðherbergi var endurnýjað 2021 og skipt um parket á barnaherbergjum.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð 100,7 fm og þar af er geymsla skráð 4,6 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 64.800.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi og korkflísar á gólfi.
Stofa og
borðstofa í góðu rými með parket á gólfi. Útgengt á góðar suður svalir.
Eldhús með korkflísar, snyrtilega innréttingu, háf yfir helluborði og tengi fyrir uppþvottavél (getur fylgt með).
Hol er rúmgott með parket á gólfi. Getur nýst sem sjónvarpshol, skrifstofa eða leikhorn.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Barnaherbergi eru tvö með nýlegt parket á gólfum og skápur í öðru þeirra.
Baðherbergi var endurnýjað 2021 og er flísalagt í hólf og gólf, með góða walk-in sturtu, upphengt salerni, góða innréttingu og skápa.
Þvottahús er innan íbúðar með linoleum dúk á gólfi og með skolvask.
Merkt stæði á sameiginlegu bílastæði.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er mjög stór í sameign í kjallara.
Stutt í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og menntaskóla.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is