*** Eignin er seld og í fjármögnunarferli ***
Gimli fasteignasala og Halla Unnur Helgadóttir kynna: Grandavegur 42, 107 Reykjavík. Virkilega björt og falleg 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og stórum svölum með svalalokun. Íbúðin skiptist í; anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrtingu. Sérinngangur af svölum. Mikil lofthæð. Íbúð 102,2 fm, geymsla 7,9 fm.
Eignin Grandavegur 42 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-3004, birt stærð 110.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Halla Unnur Helgadóttir í síma 659-4044, eða halla@gimli.is
NÁNARI LÝSING:Anddyri: flísalagt gólf, fataskápur.
Alrými:
eldhús með dökkri viðarfulningainnréttingu, hvítir efri skápar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð, gluggi.
Borðstofa liggur að eldhúsi og
stofa fjærst. Úr stofu er útg. á suðursvalir.
Aðalsvefnherbergi: mjög rúmgott og gott skápapláss. Skápar ná uppí loft, innfelld lýsing í kappa.
Barnaherbergi: mjög rúmgott, tvöfaldur skápur. Gluggi snýr að svölum.
Baðherbergi: rúmgott, flísar á gólfi og hluta veggja. WI-sturta, vegghengt salerni og vaskur í innréttingu. Speglar ofan við vask, handklæðaofn. Í þvottaskáp með rennihurðum er g.r.f þvottavél og þurrkara, þar er skolvaskur í borði.
Gestasnyrting: flísar á gólfi og hluta veggja, vaskur á innréttingu og spegill fyrir ofan.
Svalir: til suðurs, með svalalokun og flísalagt gólf, rúmlega 20 fm.
Í nánast allri íbúðinni er aukin lofthæð 2,8-2,9 metrar. Á öllum gólfum öðrum en að framan greinir er hydrocork gólfefni frá Þ.Þorgrímsson.t. Allar innréttingar eru með dökkri viðaráferð. Innihurðir eru hvítar, yfirfelldar.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðarinnar er í kjallara.
Bílastæði: sérmerkt bílastæði í bílakjallara, vel staðsett, hleðslusstöð fyrir rafbíla.
Grandavegur 42 er fjölbýlishús með lyftu, staðsett á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Byggingaraðili var Þingvangur ehf. Á milli húsanna og yfir bifreiðageymslu er sameiginlegur snyrtilegur garður. Í bílakjallara eru 19 gestastæði og þvottastæði. Mjög snyrtileg sameign.Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttahús og út á fína hjóla- og göngustíga niður við sjó - Grandinn og miðborgin eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044, tölvupóstur halla@gimli.is eða
gimli@gimli.is Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.