Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2025
Deila eign
Deila

Rofabær 45

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
90.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
753.607 kr./m2
Fasteignamat
61.000.000 kr.
Brunabótamat
46.300.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2045281
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir á síðustu árum
Þak
Járn á þaki endurnýjað árið 2017
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða, 90,1fm, 3ja herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð í húsi teiknuðu af Kjartani Sveinssyni að Rofabæ 45, 110 Reykjavík. Eignin hefur fengið afar gott viðhald á síðustu árum bæði að innan sem að utan þar sem ma. hefur verið skipt um járn á þaki, allir gluggar endurnýjaðir ásamt svalarhurðum, svalir endursteyptar og sett handrið með álprófílum og hertu gleri ofl. Í íbúðinni sjálfri hefur eldhús og baðherbergi verið endurnýjað, rafmagnstafla endurnýjuð, nýr myndavéladyrasími ofl. Þá hefur sameiginlegur inngarður fimm fjölbýlishúsa að Hraunbæ 176-198 og Rofabæ 43-47 verið uppgerður með endurnýjun gróðurs, leiktækja, spark- og körfubolta vallar. Hús- og lóðarfélag standa vel og eru í þjónustu hjá Eignarekstri sem sér um rekstur þeirra og umsjón. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni á sameiginlegri bílastæðalóð.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is


Eignin skiptist í forstofu, endurnýjað eldhús með nýlegum tækjum, rúmgóð stofa með útgengi út á suðursvalir, herbergjagang með skápaplássi ásamt innbyggðum skáp með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö rúmgóð svefnherbergi, hjónaherbergi með góðu skápaplássi, endurnýjað baðherbergi ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Í sameign á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði á sameiginlegu bílaplani.

Vinsæl og fjölskylduvænt staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem í leik- og grunnskóla, matvöruverlsun, blómlegt íþróttastarf Fylkis og Árbæjarsundlaug. Þá eru útivistarparadísirnar Elliðaárdalur og Víðidalur í göngufjarlægð.

Eignin Rofabær 45 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-5281, birt stærð 90.1 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð merkt 020107, skráð birtir 4,5fm

Fasteignamat fyrir árið 2026 skv. HMS er 67.550.000kr

Endurbætur á húsinu síðastliðin ár:
2017 - Þak yfirfarið og járn endurnýjað ásamt þakrennum. Farið var í sprunguviðgerðir á Norður- og vesturhlið hússins. Skipt um glugga og gler á norður- og suðurhlið (fyrir utan svalaglugga og gler ásamt svalahurðum). 
2018 - Skipt var um þak á húsinu, Gluggum skipt út á austur- og suðurhlið að undanskildum gluggum sem eru inni á svölum. Á norður og vestur hlið var múr lagaður og málað. Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
2018 - Sameiginlegt leik og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.
2019 - Dyrasími endurnýjaður
2022 - Leiktæki á sameiginlegri lóð endurnýjuð.
2023 og 2024 - Suðurhlið hússins var klædd og skipt um glugga og svalahurðir. Svalir endursteyptar og sett handrið með álprófílum og hertu gleri. Múrviðgerðir á steypta hlutanum inn í svölunum. Múr lagaður og suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum. Svalahurðir endurnýjaðar ásamt stofuglugga sem eru inni á svölunum.

Stigagangur Rofabær 45:
2016 - Ný sameiginleg þvottavél í sameign.
2018 - Sameiginlegri rafmagnstöflu skipt út og settir inn nýjir dyrasímar.
2018 - Nýjir póstkassar

Íbúðin 3HH í Rofabæ 45:
2018 - Nýr dyrasími og rafmagnstafla endurnýjuð.
2019 - Baðherbergi endurnýjað, flísalagt (gólf og sturta), klæðning á álagsvegg, ný baðinnrétting, sturta og baðherbergistæki. Stór skápur við hlið baðherbergis settur upp fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti lagður í gólf og heitavatns handklæðisofn settur upp.
2022 - Eldhús endurnýjað, ný innrétting og tæki, nýtt gólfefni (svartur korkur). Rafmagn lagt fyrir ný ljós og fyrir helluborð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Upphengdir snagar. Flísar á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað árið 2022. Innrétting með efri og neðri skápum, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, innfeldur vaskur, spanhelluborð, aðstaða fyrir ísskáp í innréttingu ásamt borðkrókur. Nýlegar korkflísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum glugga til suðurs og útgengi út á rúmgóðar suðursvalir.
Herbergjagangur: Tengir saman tvö herbergi og baðherbergi. Tvöfalldur innbyggður fataskápur ásamt nýlegum innbyggðum skáp með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2019. Flísar á gólfi og í sturtu. Baðinnrétting með neðri skúffum með handlaug ofan á borði, skáp og spegli fyrir ofan skáp.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign á jarðhæð, 4,5fm.

Sameign: Sameign öll hin snyrtilegasta. Sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- & vagnageymslu.
Garður: Einstaklega fallegur, skemmtilegur og vel hirtur sameiginlegur inngarður með nýlegum leiktækjum, sparkvelli með mörkum og körfum. Gróður einnig vel hirtur og hefur verið að hluta til endurnýjaður á síðustu árum.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði á sameiginlegu bílaplani.

Góð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald hin undanfarin ár með fallegum inngarði í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Árbænum.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/08/201520.100.000 kr.22.500.000 kr.90.1 m2249.722 kr.
29/08/200614.230.000 kr.16.700.000 kr.90.1 m2185.349 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rofabær 31
Skoða eignina Rofabær 31
Rofabær 31
110 Reykjavík
89.4 m2
Fjölbýlishús
312
726 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vallarás 3
Skoða eignina Vallarás 3
Vallarás 3
110 Reykjavík
87.6 m2
Fjölbýlishús
413
775 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 60
Skoða eignina Hraunbær 60
Hraunbær 60
110 Reykjavík
101.4 m2
Fjölbýlishús
514
640 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 98
Skoða eignina Hraunbær 98
Hraunbær 98
110 Reykjavík
95.4 m2
Fjölbýlishús
413
733 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin