Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega 3ja til 4ra herbergja íbúð með aukinni lofthæð á 4 og efstu hæð á frábærum stað í Seljahverfinu að Engjaseli. Íbúðin er með millilofti og möguleiki á að gera annað svefnherbergi í holi þar. Einstakt útsýni til suð-vesturs yfir borgina út á Reykjanes.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð í fasteignayfirliti 121,2 fm og þar af er bílastæði skráð 24,1 fm.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa er rúmgóð með góðum yfirhafnaskáp og parket á gólfi. Innaf yfirhafnaskáp er mjög stór
geymsla sem ekki er inn í fermetratölu eignar þar sem hún er undir súð.
Stofa er mjög rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðar suð-vestur svalir. Einstakt útsýni.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, viftu yfir eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfum og góður eldhúskrókur sem opinn er yfir í stofu.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er mjög rúmgott með flísar á gólfi og vegg að mestu. Walk-in sturta og baðkar, upphengt salerni, handklæðaofn og góðir skápar. Aðstaða og tengi fyrir þvottavél í skápum. Loftgluggi með rafmagnsopnara.
Teppalagður tréstigi upp á milliloft:Rúmgott
hol með parket á gólfi. Hægt væri að gera svefnherbergi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Sérgeymsla íbúðar í sameign á jarðhæð, sem ekki er inn í fm íbúðar.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Nýlega búið að mála húsið, yfirfara þak og var þá skipt um þakjárn.Góð staðsetning í Seljahverfinu og leik- og grunnskóli í göngufæri og stutt í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is