Fasteignaleitin
Opið hús:18. mars kl 17:15-17:45
Skráð 17. feb. 2026

Sjávargata 11

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
245.7 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
185.500.000 kr.
Fermetraverð
754.986 kr./m2
Fasteignamat
164.300.000 kr.
Brunabótamat
132.350.000 kr.
Mynd af Heiðrekur Þór Guðmundsson
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
viltu.isEignir í sölu
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2081695
Landnúmer
123488
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Yfirfarin 2025
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Yfirfarnir og málaðir 2022
Þak
Skipt um járn á aðalhúsi og hluta viðbyggingar 2025
Svalir
Nei
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

Viltu fasteignir kynna 245,7 m2 einbýlishús á einni hæð með rúmgóðri aukaíbúð. Húsið stendur á 1.201m2 eignarlóð á fallegum stað á Álftanesi

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Sjávargata 11 er fallegt og vel skipulagt 245,7 m2 einbýlishús á einni hæð á frábærum stað á Álftanesi.
5-6 svefnherbergi í heildina, bílskúr og stór sólpallur. Húsið stendur á stórri lóð með mikla möguleika.
Aðalhúsið var tekið í notkun 1990, sólstofa og bílskúr árið 2000 og árið 2010 var byggð um 70m2 viðbyggin við húsið sem notuð er sem aukaíbúð og hentar vel til útleigu. Auðvelt er að opna milli viðbyggingar og hússins og nota t.d sem stóra hjónasvítu og til að fjölga herbergjum.

Húsið er vel um gengið og hefur verið í eigu sama aðila frá byggingu þess. Ytra byrði hússins hefur fengið reglulegt viðhald:
2025 skipt um járn á aðalhúsi og hluta viðbyggingar.
2025 smíðaðaur vandaður þakkantur með fallegri lýsingu allan hringinn
2025 Raflagnir og tafla yfirfarin
2022 Húsið, gluggar og hurðir máluð

Frábært tækifæri til að eignast gott einbýlishús með mikla möguleika á að aðlaga notkun og skipulag eftir eigin höfði.
Plejd snjallljósastýring í meginhluta hússins

Nánari lýsing:

Aðalhús:
Forstofa:
Að utan er gengið í forstofu með góðum fataskáp.
Herbergi 1: Út frá forstofu er mjög rúmgott herbergi sem áður var tvö minni herbergi. Auðvelt að breyta til baka.
Hol: Úr forstofu er gengið í hol/gang þaðan sem gengið er í önnur rými hússins.
Stofa: Mjög stór og björt með aukinni lofthæð allt að 3,7 metrum
Sólstofa/ Borðstofa: Samliggjandi við stofu er sólstofa með flísum á gólfi og gólfhita. Í dag er hún nýtt að hluta til sem borðstofa. Frá sólskála er hægt að ganga út á sólpall með heitum potti.
Eldhús: Mjög rúmgott og bjart með vandaðri upphaflegri innréttingu á þrjá vegu ásamt borðkrók. Innréttað árið 2000
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með fataskápum.
Herbergi 2: Í dag er það sameinað svefnherbergi 1 en auðvelt að skipta í tvö herbergi aftur.
Herbergi 3: Nett herbergi með glugga. Hentar bæði sem svefnherbergi og/eða t.d. heimaskrifstofa.
Herbergi 4: Gegnt herbergi 3 er annað nett herbergi með glugga.
Baðherbegi: Flísalagt í hólf og gólf. Bæði góður sturtuklefi og baðkar. Góð innrétting og handklæðaofn. Innréttað árið 2000
Þvottahús/geymsla: Frá eldhúsi er gengið í gott þvottahús og geymslu. Góð innrétting með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er einnig annar inngangur í húsið.
Geymsluloft: Yfir hluta hússins er um 40m2 geymsluloft sem nýtist mjög vel.

Viðbygging/aukaíbúð. Upphaflega teiknuð sem hjónasvíta ásamt tveimur góðum svefnherbergjum. Í dag er þetta um 70m2 sjálfstæð íbúð með gólfhita í öllum rýmum.
Gangur: Að utan er komið inn á gang/hol þaðan sem gengið er í önnur rými.
Eldhús: Rúmgott með góðri innréttingu. Pláss fyrir uppþvottavél og þvottavél í innréttingunni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð labb inn sturta og nett innrétting.
Stofa: Fín stofa sem upphaflega var hugsuð sem svefnherbergið í hjónasvítunni. Innaf þessu herbergi er baðherbergið og eitt nett herbergi sem teiknað er sem fataherbergi.
Svefnherbergi 1: Gott herbergi með glugga.
Svefnherbergi 2: Netta herbergið innaf stofunni.

Bílskúr: Bílskúrinn er 32,4m2 og með góðri lofthæð. Heitt og kalt vatn, rafmagn og salerni
Smáhýsi á lóð: Smáhýsið stendur á steyptum sökkli en það á eftir að steypa plötuna. Gert ráð fyrir heitu/köldu vatni, rafmagni og frárennsli(klóaki)

Lóð/garður: Húsið stendur á rúmlega 1.200m2 eiganrlóð og við húsið er um 130 m2 sólpallur með heitum potti. Frábært tækifæri til að búa til algjöran sælureit á lóðinni!

Frábært tækifæri til að eignast einbýli á einni hæð með aukaíbúð.

Stutt er í skóla og leikskóla. Mjög rólegt og fjölskylduvænt svæði. Ýmsar vinsælar gönguleiðir í fallegu umhverfi meðfram sjávarsíðunni

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

    Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
    Allt innifalið.
    Kynntu þér málið á Viltu.is

    Fyrirvarar:

    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

    Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

    Engin gögn fundust fyrir þessa eign
    Byggt 1996
    32.4 m2
    Fasteignanúmer
    2081695
    Byggingarefni
    Steypt
    Númer hæðar
    01
    Númer eignar
    01
    Byggingarstig
    B4 - Fullgerð bygging
    Húsmat
    0 kr.
    Lóðarmat
    0 kr.
    Fasteignamat samtals
    0 kr.
    Brunabótamat
    14.600.000 kr.

    Myndir (43)

    Sambærilegar eignir

    Skoða eignina Ystasel 27
    Bílskúr
    Skoða eignina Ystasel 27
    Ystasel 27
    109 Reykjavík
    334.5 m2
    Einbýlishús
    1248
    628 þ.kr./m2
    210.000.000 kr.
    Skoða eignina Laugaborg 0510
    Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
    laugaborg 510 nyr afangi.jpg
    Skoða eignina Laugaborg 0510
    Laugaborg 0510
    105 Reykjavík
    145.5 m2
    Fjölbýlishús
    423
    1368 þ.kr./m2
    199.000.000 kr.
    Skoða eignina Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502
    Bílastæði
    Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
    Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502
    210 Garðabær
    158.3 m2
    Fjölbýlishús
    423
    1251 þ.kr./m2
    198.000.000 kr.
    Skoða eignina Skildinganes 45
    Gott husfrontur 3.jpg
    Skoða eignina Skildinganes 45
    Skildinganes 45
    102 Reykjavík
    250 m2
    Einbýlishús
    936
    Fasteignamat 169.650.000 kr.
    Tilboð
    Fasteignaleitin
    Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
    Hafðu samband
    © Copyright 2026 - Fasteignaleitin