Fasteignaleitin
Opið hús:20. ágúst kl 18:00-18:30
Skráð 17. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Hvammsgerði 8

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
122.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
857.727 kr./m2
Fasteignamat
81.650.000 kr.
Brunabótamat
55.200.000 kr.
Mynd af Freyja Sigurðardóttir
Freyja Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1962
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2033650
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
tvöf.
Svalir
svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Engir gallar sem stm Hraunhamars er kunnugt um.
Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamr.is kynna:

Afar fallega og bjarta mikið endurnýjaða sérhæð (miðhæð) 4ra herbergja með aukaherbergi í kjallara samtals 122,3 fm í virðulegu 3-býli á þessum eftirsótta stað í smáíbúðarhverfinu Rvk. Sérinngangur. Suður svalir.  Róleg og góð staðsetning, en samt örstutt í alla þjónustu, skóla, verslanir ofl. 

Hæðin hefur forgangsrétt af bílastæði í innkeyrslu. 


Hæðin er ca 100,3 fm auk herbergis í kjallara með góðri lofthæð og geymslu þar fyrir innan. (22,0 fm) 
Samtals stærð eignar því 122,3 fm.

Eignin skiptist m.a. þannig: Sérinngangur, forstofa flísalögð, (og frá forstofu er gengið niður í sameign) hol/gangur, skápur. Glæsilegt bjart eldhús með nýlegum ljósum innréttingum með steinplötu á borðum, vönduð tæki og flísar á veggjum.  Falleg rúmgóð björt samliggjandi stofa/borðstofa við eldhúsið.
Svefnálma: Glæsilegt baðherbergi með ljósri innréttingu, fín sturtuaðstaða, flísar í hólf og gólf, gluggi.
Stórt hjónaherbergi með skáp, og útgengt þaðan á suður svalirnar. (samþykkt að byggja yfir svalir, en endurnýja þarf byggingarleyfið hjá borginni. Stórt herbergi, (teiknað sem tvö) þar er búið að útbúa tvö rými innaf hvort öðru, með léttum milliveggi og rennihurð, nýtist sem eitt barnaherbergi og eitt vinnuherbergi, eða tvö herbergi innaf hvort öðru. 
Fallegt ljóst viðarparket á gólfum íbúðar. Í kjallara er síðan stórt herbergi með viðarparketi á gólfum og geymsla 22 fm og snyrtilegt sameiginlegt þvottaherbergi. Herbergið gæti nýst fyrir hobbýið eða sem unglingaherbergi. Sérinngangur inn í sameign á neðri hæð.

Samkvæmt uppl. seljenda er eignin þó nokkuð endurnýjuð m.a. öll gólfefni, ofnar og ofnalagnir, innhurðir, gler að hluta og rafmagn að mestu leyti í íbúðinni.
Húsið var málað í kringum 2010 og járn á þaki líka. Búið er að skipta um glugga á austurhlið og gler í mörgum gluggum. Baðherbergið allt endurnýjað á smekklegan máta,flísalagt í hólf og gólf með flottir sturtuaðstöðu.
Ljós innrétting, upphangandi salerni, gluggi.
 Útitröppur endurnýjaðar. 

Fallegur garður með hellulagðri verönd, grasflöt, trjágróðri og geymslukofa sem tilheyrir eigninni.

Þetta er sannarlega áhugaverð eign á þessum vinsæla stað til að skoða frekar.
Mikil veðursæld. 


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Valgerður Ása Gissuradóttir lgf. s 791-7500 vala@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/11/201533.050.000 kr.39.500.000 kr.122.3 m2322.976 kr.
06/07/200620.720.000 kr.22.700.000 kr.122.3 m2185.609 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sogavegur 109
Opið hús:18. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Sogavegur 109
Sogavegur 109
108 Reykjavík
159 m2
Hæð
513
691 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 103
3D Sýn
Háaleitisbraut 103
108 Reykjavík
159.3 m2
Fjölbýlishús
514
606 þ.kr./m2
96.500.000 kr.
Skoða eignina Melgerði 31
Skoða eignina Melgerði 31
Melgerði 31
108 Reykjavík
144.6 m2
Hæð
624
795 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hólmgarður 34
Opið hús:19. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hólmgarður 34
Hólmgarður 34
108 Reykjavík
120.8 m2
Fjölbýlishús
322
827 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin