Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun
Björt og falleg fjögurra herbergja 127,5 m2 neðri sérhæð með góðum sólpalli við Kólguvað 9 í Norðlingaholti. Eignin er í sérlega barnvænu hverfi þar sem stutt er í góða leik- og grunnskóla. Frábærar gönguleiðir eru í kringum hverfið, bæði Heiðmörk og Elliðaárdalurinn.
Eignin er skáð skv. Þjóðskrá Íslands alls 127,5fm. og skiptist í forstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rými, þvottahús /geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa er einstaklega rúmgóð, með góðu skápaplássi sem nær upp í loft og flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í björtu og rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt er út á viðarverönd með skjólvegg.
Eldhús er opið við stofu, hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni, eyja með góðu geymsluplássi, gott borðpláss og hægt er að sitja við eyjuna. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með góðu skápaplássi sem nær upp í loft og parket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö. Bæði mjög rúmgóð með góðu skápaplássi og ná skápar upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, innréttingu við handlaug og góðu skápaplássi. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með vask og aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi.
Fyrir framan húsið er viðarverönd með skjölgirðingu með hliði. Bakgarður er með grasi. Næg bílastæði og er byggt bara öðru megin í götunni.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is